Menning

Kítón-konur flytja uppáhaldslögin sín í Hamraborg

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ave Sillaots, Lára Sóley Jóhannsd., Ásdís Arnard., Helga Kvam, Ella Vala Ármannsd., Kristjana Arngrímsd. og Þórhildur Örvarsd.
Ave Sillaots, Lára Sóley Jóhannsd., Ásdís Arnard., Helga Kvam, Ella Vala Ármannsd., Kristjana Arngrímsd. og Þórhildur Örvarsd. Mynd/Daníel Starrason
Hópur sem kallar sig Kítón (norðlenskar konur í tónlist) stígur á svið Hamraborgar í Hofi á Akureyri á laugardaginn klukkan 20. Þar mun hljóma brot af því besta sem konurnar fluttu í geysivinsælli tónleikaröð síðasta haust.

„Við vorum með visst þema á hverjum tónleikum, sjómannalög, lög sem tengdust sveitinni og lög frá hernámsárunum,“ lýsir Lára Sóley Jóhannsdóttir, söngkona og fiðluleikari. „Nú erum við búnar að velja uppáhaldslögin úr þessu þrennu enda fengum við alveg frábærar viðtökur og vorum ekki alveg tilbúnar að hætta og leggja þetta efni til hliðar.“

Tónleikar haustsins fóru meðal annars fram um borð í bát, í hlöðu og í Flugsafninu á Akureyri að sögn Láru Sóleyjar. Hún hlakkar til að koma nú fram í fyrsta flokks sal, þó hitt hafi verið skemmtilegt líka.

Spurð hvaða þema höfði mest til hennar svarar hún: „Tónlistin frá hernámsárunum er rómantísk og falleg en það er meiri áskorun að flytja sjómannalögin, þau eru svo mögnuð en textarnir margir karllægir. Við settum aðeins upp kynjagleraugun. Sjómennirnir stæra sig af að eiga kærustur í hverri höfn, það þætti nú ekki jafn jákvætt ef konur ættu svo marga ástmenn!“

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 23. febrúar 2017






Fleiri fréttir

Sjá meira


×