Golf

Kisner efstur eftir 36 holur í Kína - Hefur enn ekki fengið skolla

Kisner einbeittur á öðrum hring í nótt.
Kisner einbeittur á öðrum hring í nótt. Getty.
Bandaríkjamaðurinn Kevin Kisner er í efsta sæti á HSBC Meistaramótinu eftir 36 holur en hann hefur leikið frábært golf, ekki fengið einn einasta skolla og er á 14 höggum undir pari.

Skotinn Russell Knox er í öðru á 12 höggum undir pari og Suður-Afríkumaðurinn Branden Grace sem leiddi eftir fyrsta hring er í þriðja sæti á tíu undir.

Skor keppenda var ekki jafn gott á öðrum hring í nótt og á þeim fyrsta enda aðstæður á Sheshan International vellinum ekki jafn heppilegar.

Stór nöfn á borð við Rickie Fowler, Rory McIlroy, Bubba Watson og Jordan Spieth sitja á fjórum undir pari, tíu höggum á eftir efsta manni.

Hinn högglangi Dustin Johnson er þó meðal efstu manna á átta undir pari, einu verri heldur en ungstirnið Patrick Reed sem er í fjórða sæti á níu undir.

Þá hefur slöpp frammistaða fyrrum besta kylfings heims, Adam Scott, vakið athygli en hann er í næst síðasta sæti mótsins á sjö höggum yfir pari.

Þriðji hringur verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 03:00 í nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×