Kínverskur andófsmaður flúði úr stofufangelsi 28. apríl 2012 00:15 Eftir flóttann birti hann myndband á Youtube þar sem hann biður um að fjölskyldu sinni verði hlíft. nordicphotos/AFP
Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hefur flúið úr stofufangelsi og er sagður í felum einhvers staðar í Peking. Embættismenn hófu strax ákafa leit að honum og beindu athyglinni í fyrstu að fjölskyldu hans. Það var He Pirong sem náði í Chen og ók honum á stað sem hún segir „nokkuð öruggan" án þess að vilja láta meira uppi. He hefur verið í fararbroddi baráttunnar fyrir því að hann yrði látinn laus. Hún segir það ekki rétt, sem fullyrt var í dagblaði í Singapúr, að Chen sé kominn í bandaríska sendiráðið í Peking. Kínverska lögreglan sé byrjuð að leita að honum og í raun sé ekkert hægt að ábyrgjast um öryggi hans. Hún segir að Zhang Jian, bæjarstjóri í Dongshigu, þorpinu þar sem Chen var í haldi, hafi orðið æfur þegar hann komst að því að hann væri flúinn. Hann hafi óðar farið með lið manna að heimili bróður Chens, klifrað þar yfir vegg og byrjað að þjarma að fjölskyldunni. „Þeir börðu alla úr fjölskyldunni sem voru heima," segir He. Einn frænda Chens, sem heitir Chen Kegui, hafi þá tekið upp kjötsax sér til varnar. „Hann sagðist hafa höggvið til nokkurra manna með kjötsaxinu og sært þá," hefur He eftir frændanum. Chen, sem er fertugur, hefur verið í stofufangelsi á heimili sínu í Dongshigu í hálft annað ár, eða frá því hann var látinn laus úr fangelsi árið 2010. Hann hafði þá lokið afplánun fjögurra ára dóms sem hann hlaut fyrir að hafa valdið bæði eignaspjöllum og truflunum á umferð. Chen er lögfræðingur sem árið 2005 vakti athygli á bágu ástandi mannréttindamála í sveitahéruðum Kína, þar sem embættismenn framfylgdu af mikilli hörku þeirri stefnu að enginn megi eiga fleiri en eitt barn. Chen er blindur og fullvíst þykir að honum hefði ekki tekist að flýja nema með hjálp íbúa í þorpinu Dongshigu.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira