Enski boltinn

Kínverski Sergio Ramos í viðræðum við Chelsea

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Kínverski Ramos hér til hægri.
Kínverski Ramos hér til hægri. Vísir/Getty
Chelsea lagði fram tilboð í Zhang Linpeng, varnarmann Guangzhou Evergrande, á dögunum en Linpeng er þekktur í deildinni sem Zhangmos, tileinkað Sergio Ramos, sem hann á að líkjast á vellinum.

Chelsea sendi tilboð til Guangzhou um að fá Linpeng lánaðann á miðvikudaginn en hann getur leikið sem miðvörður og bakvörður líkt og Sergio Ramos, leikmaður Real Madrid.

Knattspyrnustjóri Guangzhou ætti að vera stuðningsmönnum Chelsea kunnugur en Luis Felipe Scolari, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea og þjálfari brasilíska landsliðsins, stýrir liðinu þessa dagana.

Chelsea er þessa dagana að reyna að bæta við sig varnarmanni áður en félagsskiptaglugginn lokar en þremur tilboðum félagsins í John Stones, varnarmann Everton, hefur verið hafnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×