Skoðun

Kínverska gengissigið

lars christensen skrifar
Í fyrrasumar olli það verulegum taugatitringi á mörkuðum um allan heim þegar vangaveltur um gengisfall hins kínverska renminbis fóru vaxandi. En það sem hefur vakið miklu minni athygli er að kínverski seðlabankinn – Alþýðubanki Kína (PBoC) – virðist á síðustu tíu mánuðum eða svo hafa tekið upp þá stefnu að láta kínverskt renminbi síga hægt.

Þannig er það mjög greinilegt að PBoC bindur nú ekki gengi renminbis við bandaríska dollarann og hann heldur ekki einu sinni gjaldmiðlinum stöðugum gagnvart myntkörfu eins og sumir höfðu getið sér til að yrði nýja stefnan fyrir ekki svo löngu.

Ef við lítum á nafnvirði vegins meðalgengis renminbis gagnvart myntkörfunni sjáum við að kínverski gjaldmiðillinn hefur veikst um 5-6% síðan í október á síðasta ári. Það virðist kannski ekki mikið en ef gengissigið heldur áfram með sama hraða jafngildir það árlegu gengissigi kínverska gjaldmiðilsins um meira en 10% og þessa stundina eru engin merki um að PBoC ætli að hægja á gengissiginu. Reyndar lítur út fyrir að hraði gengissigsins hafi aukist nokkuð á síðustu vikum.

Það ætti að vegsama renminbi

Sumir kynnu að halda því fram að Kínverjar séu nú í hættulegu „gjaldmiðlastríði“ og að það séu engir sigurvegarar í keppni um að veikja gjaldmiðla. En þeir líta fram hjá mikilvægu atriði – að Kína þarf lausbeislaðri peningamálastefnu til að tryggja að niðursveiflan í kínverska hagkerfinu breytist ekki í algera efnahagslægð.

Þannig er gengislækkun renm­inbis aðeins afleiðing þess að kínverski seðlabankinn er að losa um peningamálastefnuna og er sem slík jákvæð fyrir öll hagkerfi heimsins, sem myndu skaðast verulega ef kínverska hagkerfið – það næststærsta í heimi – félli niður í efnahagslægð.

Í verðhjöðnunarheimi ættum við að taka „gjaldmiðlastríðum“ fagnandi – í þeim skilningi að heimskeppni í að prenta peninga er einmitt það sem þarf til að halda aftur af verðhjöðnunarþrýstingi. Heimurinn í dag líkist fjórða áratugnum meira en þeim áttunda. Vandamálið á heimsvísu er ekki of mikil verðbólga heldur of mikil verðhjöðnun.

Auk þess ættu menn að athuga að PBoC er að reyna að vega upp á móti áhrifum hertari peningamarkaðsskilyrða í Bandaríkjunum á kínverska hagkerfið. Þannig er það sennilega ekki tilviljun að eftir á að hyggja virðist PBoC hafa hafið gengissigsstefnu sína um sama leyti og seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnti í október í fyrra að hann ætlaði að hækka stýrivexti nokkrum sinnum á árinu 2016.

Hnattræna hagkerfið hefur hægt verulega á sér síðasta árið og á meðan áhyggjur af hagkerfi Bretlands og evrusvæðisins fara vaxandi er það rétt af PBoC að halda áfram að leyfa renminbi að veikjast. Reyndar gæti hraðara gengisfall renminbis átt rétt á sér og það gæti komið til þess fyrr en seinna.




Skoðun

Sjá meira


×