Bílar

Kínverjar hefja sölu jepplings í Bretlandi

Finnur Thorlacius skrifar
Bílaframleiðandinn Qoros frá Kína mun hefja sölu á jepplingi í Bretlandi í næsta mánuði og markar það fyrstu tilraunina til sölu bíla fyrirtæksins í landinu en hann er nú í sölu í Slóvakíu.

Jepplingurinn heitir Qoros 3 City SUV og var hann sérstaklega hannaður fyrir sölu í Evrópu með hönnuðum frá Evrópu. Qoros 3 City SUV stendur á sama undirvagni og fólksbíllinn Qoros 3 en er 6,7 sentimetrum hærri frá vegi. Hann er einnig á stærri dekkjum.

Í bílnum er 165 hestafla 1,6 lítra bensínvél en þrátt fyrir að þetta sé jepplingur er hann aðeins til sölu með framhjóladrifi. Hann verður fáanlegur með 6 gíra beinskiptingu sem og 6 gíra sjálfskiptingu.

Qoros vinnur nú að framleiðslu fleiri bíla fyrir Evrópumarkað og verður forvitnilegt að sjá hvernig þeim reiðir í sölu. Ekki ríkir minni forvitni um hvernig bílar Qoros munu standa sig í öryggisprófunum. Ekki fylgir sögunni hvað Qoros 3 City SUV mun kosta í Bretlandi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×