Viðskipti erlent

Kínverjar auka enn erlenda fjárfestingu

Finnur Thorlacius skrifar
Kínverjar fjárfesta sem aldrei fyrr í öðrum löndum.
Kínverjar fjárfesta sem aldrei fyrr í öðrum löndum.
Undanfarin ár hefur fé streymt frá Kína til fjárfestinga erlendis, ekki síst í fasteignum, tæknifyrirtækjum og olíu- og gasfyrirtækjum. Svo mikil er þessi erlenda fjárfesting Kínverja í ár að hún mun verða meiri en innlend fjárfesting í Kína.  

Verður það í fyrsta skipti síðan Kínverjar hófu fyrir alvöru erlenda fjárfestingu. Stefnir hún í ár í um 14.600 milljarða króna og nemur 11% aukningu frá því í fyrra. Í hátæknigeiranum er fjárfesting Kínverja langmest í Bandaríkjunum, eða að fjórum fimmtu hluta.

Sú breyting hefur einnig orðið á á síðustu árum að fjárfestingarnar einskorðast ekki bara við Kínverska ríkið heldur hafa einkafyrirtæki í Kína aukið mjög við erlenda fjárfestingu sína og er svo komið að þær nema nú 76% allrar fjárfestingar frá Kína.

Af nýlegum stórum fjárfestingum Kínverja má nefna kaup kínverska tölvuframleiðandans Lenovo á netþjónadeild IBM og Motorola fyrirtækinu, sem og kaupin á glæsihótelinu Waldorf Astoria í New York. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×