Erlent

Kína sýndi mátt sinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Fjölmargir fylgdust með skrúðgöngunni á Tiananmen torgi í Peking.
Fjölmargir fylgdust með skrúðgöngunni á Tiananmen torgi í Peking. Vísir/EPA
Kínverjar fögnuðu því í morgun að 70 ár eru liðin frá því að Japan gafst upp í seinni heimstyrjöldinni. Fagnað var með gríðarstórri skrúðgöngu á Tiananmen torgi í Peking. Þar sýndu Kínverjar nýjan herbúnað sem og eldflaugar.

Meira en tólf þúsund hermenn tóku þátt í göngunni. Þar að auki var notast við 500 skriðdreka og annars konar farartæki auk 200 flugvéla og þyrlna.

Neðst í fréttinni má sjá myndir frá skrúðgöngunni og myndbönd.

Fremst í göngunni fóru fyrrverandi hermenn sem börðust við Japani í seinni heimstyrjöldinni. Þyrlur flugu yfir svæðið og mynduðu tölustafina 7 og 0. Þotur flugu einnig yfir svæðið og sýndu hvernig þær eru fylltar eldsneyti á flugi. Greinendur hafa tekið eftir því að flugvélarnar báru búnað til að lenda á flugmóðurskipum, sem endurspeglar vilja Kínverja til að byggja upp öflugan flota.

Enn sem komið er eiga Kínverjar þó einungis eitt flugmóðurskip, sem notað er að mestu til æfinga. Fregnir hafa þó borist af því að nú standi yfir smíði að tveimur slíkum skipum til viðbótar og ljóst er að Kínverjar gætu byggt þó nokkur flugmóðurskip á næstu árum.

Gangan þykir sýna fram á að mikil nútímavæðing hefur átt sér stað í herafla Kína. Meðal eldflauga sem sýndar voru gestum hátíðarinnar voru DF-21D sem ætluð er til að granda flugmóðurskipum og DF-26 sem drífur alla leið að Guam, þar sem Bandaríkjamenn eru með flugvöll og flotastöð.

Þar að auki sýndu Kínverjar nýja dróna sem virðast byggja á Predator drónum Bandaríkjanna.

Kynna her en boða frið

Xi Jinping, forseti Kína, hélt ræðu þar sem hann sagði að þrátt fyrir atburði fortíðarinnar ætlaði Kína sér ekki að stjórna öðrum né leggja undir sig önnur svæði.

Frá því að Xi tók við völdum 2012 hafa kínversk herskip hins vegar ógnað skipum Landhelgisgæslu Japan nærri umdeildum eyjum, sótt inn á svæði Filippseyja og þá hafa hermenn byggt heilar eyjur úr litlum rifum í Suður-Kínahafi. Á þeim eyjum hafa Kínverjar byggt flugbrautir og annars konar húsnæði sem nýtast í hernaði.



Hér má sjá stóran hluta hátíðarhaldanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×