Lífið

Kimmel kom með heila rútu af grunlausum túristum inn á Óskarinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábært atriði.
Frábært atriði.
Skemmtilegt atvik átti sér stað á Óskarsverðlaununum í nótt þegar kynnirinn Jimmy Kimmel kom heilli rútu af túristum á óvart.

Það tók margar vikur að undirbúa atriðið. Haft var samband við hópinn og þeim tilkynnt að þau væri á leiðinni í óvænta uppákomu.

Það grunaði væntanlega engum að áfangastaðurinn væri Dolby leikhúsið þar sem Óskarinn fór fram í 89. skipti.

Hópurinn gekk framhjá öllum stærstu stjörnum heims sem allar sáttu a fremsta bekk. Hér að neðan má sjá þetta frábæra atriði.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×