Glamour

Kim og Kanye kæfa skilnaðarorðróma með jólakorti

Ritstjórn skrifar
Falleg fjölskylda.
Falleg fjölskylda. Mynd/Twitter
Líkt og alþjóð veit þá hefur lítið heyrst í hjónakornunum Kim Kardashian og Kanye West seinustu mánuði. Það var því ánægjulegt þegar Kanye birti mynd af fjölskyldu sinni saman á Twitter síðu sinni. 

Myndin er tekin í jólaboði Kardashian  fjölskyldunnar sem haldið var þann 24.desember. Orðrómur um skilnað þeirra hjóna hefur verið í gangi seinasta mánuð en með þessari mynd má segja að það séu einungis kjaftasögur. 

Á myndinni má meðal annars sjá Kim Kardashian í fallega gylltum Rodarte kjól, Kanye West orðinn ljóshærðan og Saint West í nýrri týpu af Yeezy Boost skóm sem hafa gert aðdáendur tryllta af spenningi. 






×