Glamour

Kim mætti í fjólubláu frá toppi til táar

Ritstjórn skrifar
Alltaf vel stíliseruð.
Alltaf vel stíliseruð. Mynd/Getty
Kim Kardashian mætti í fjólubláu frá toppi til táar á Yeezy Season 5 sýninguna í New York í gær. Hún var þar mætt til þess að fylgjast með eiginmanni sínum, Kanye West, sýna haustlínu sína í samstarfi við Adidas. 

Dressið hennar Kim er partur af haustlínunni og var hún því fyrst allra að ganga í flíkum úr línunni. Kanye var að vinna með nýja litapallettu í haustlínunni en þessi fjólublái eða vínrauði litur er trend sem við vonumst til að nái vinsældum með haustinu.






×