Glamour

Kim Kardashian sést í fyrsta sinn í margar vikur

Ritstjórn skrifar
Kim leit út eins og hún væri ekki í stuði fyrir papparazzi ljósmyndarana.
Kim leit út eins og hún væri ekki í stuði fyrir papparazzi ljósmyndarana. Mynd/Skjáskot TMZ
Í fyrsta sinn í margar vikur hefur Kim Kardashian ákveðið að fara á meðal almennings. Kim hefur haldið sig til hlés frá því að hún varð fyrir vopnuðu ráni í París í byrjun mánaðarins. 

Hún ákvað í gær að fá sér ís ásamt besta vini sínum, Jonathan Cheban. Það sást vel á henni að hún var ekki jafn hress eins og hún er vön að vera, enda er það vel skiljanlegt. Hún var ómáluð í stórri hettupeysu og inniskóm og leit vel út eins og vanalega. 










×