Glamour

Kim Kardashian á forsíðu Forbes

Ritstjórn skrifar
Kim hefur gert það gott með símaleiknum sínum og emoji forritinu sínu.
Kim hefur gert það gott með símaleiknum sínum og emoji forritinu sínu.
Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kim Kardashian er nýjasta forsíðufyrirsæta tímaritsins Forbes, sem er viðskiptablað gefið út í Bandaríkjunum. Þar er hún titluð sem "Mobile Mogul" en hún hefur verið að gera það gott með smáforritum sínum. 

Árið 2014 gaf hún út tölvuleikinn Kim Kardashian Hollywood sem að hefur halað inn 45 milljónum dollara frá útgáfu. Fyrr á þessu ári gaf hún einnig út Kimoji og Kim smáforritin sem slegið hafa í gegn.

Í viðtalinu við Forbes ræðir hún afhverju hún ákvað að láta til skara skríða og byrja með sinn eigin tölvuleik en hún hafði frá barnæsku verið mikið fyrir að spila slíka leiki. Hún hafi þó verið stressuð um hvað fólki mundi finnast um að fara að apa eftir hennar eigin lífi í leiknum enda byggir hann á hennar raunveruleika. 

Viðtalið má lesa í heild sinni hér. 






×