Lífið

Kim Kardashian á 26 þúsund króna tannbursta

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kim Kardashian.
Kim Kardashian. vísir/getty
Stjörnuhjónin Kim Kardashian og Kanye West eiga tannbursta sem kostar hvor fyrir sig 220 dollara, eða rétt rúmlega 26 þúsund krónur.

Tannburstarnir sem um ræðir heita Sonicare DiamondClean og eru frá Philips. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu hvítta tannburstarnir tennurnar á undir viku og eru með fimm stillingum.

Samkvæmt tímaritinu People eiga hjónin nokkra tannbursta og þeim virðist vera afar annt um tannhreinsun.

Ekki er ljóst hvort dóttir þeirra, North, eigi svo dýran bursta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×