Lífið

Kim kappklædd á forsíðunni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian prýðir þrjár mismunandi forsíður fyrir breska tímaritið Elle sem væntanlegt er í verslanir.

Vekur það athygli að Kim er kappklædd á tveimur af þremur forsíðum en stutt er síðan nektarmyndir af henni í tímaritinu Paper gerðu allt vitlaust.

Í Elle er því haldið fram að Kim sé tákngervingur sjálfstrausts, að hún þéni þrjú þúsund dollara á tímann, tæplega fjögur hundruð þúsund krónur og að tuttugu manns byrji að fylgja henni á samfélagsmiðlunum á hverri mínútu.

Forsvarsmenn Elle gefa lítið upp um hvað Kim ræðir í forsíðuviðtalinu sjálfu en eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Kanye West, kemur þar við sögu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×