Erlent

Óvænt sorg Kim Jong-un

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Leiðtoginn sést hér heimsækja slasaða.
Leiðtoginn sést hér heimsækja slasaða. Vísir/AFp
Ríkissjónvarp Norður-Kóreu segir að Kim Jong-un, leiðtogi ríkisins, sé í sárum vegna rútuslyss sem varð í landinu á sunnudag. Í rútunni voru kínverskir ferðamenn í bland við heimamenn. Alls biðu 37 bana þegar rútan ók fram af brú í suðurhluta landsins.

Það telst til stórtíðinda þegar fjölmiðlar Norður-Kóreu flytja neikvæðar innlendar fréttir - og það að sjálfur leiðtogi ríkisins tjái sig um slíkar fregnir er enn fátíðara.

„[Kim] segir að þetta óvænta slys hafi fyllt hjarta hans af djúpri sorg,“ er haft eftir fréttaþul KNCA, norður-kóreska ríkissjónvarpsins, á vef BBC.

„Hann gat ekki haldið aftur af sorg sinni þegar hann hugsaði til syrgjandi fjölskyldanna sem misstu ættingja sína.“

Á myndskeiði sem birtist í ríkissjónvarpinu mátti sjá Kim heimsækja eftirlifendur á sjúkrahúsi og sagði fréttamaðurinn að leiðtoginn hafi viljað kynna sér hvernig meðferð þeirra gengi.

Þá heimsótti Kim einnig kínverska sendiráðið í Pjongjang þar sem hann vottaði sendiherra landsins samúð norður-kóresku þjóðarinnar.

Ætla má að þessa óvæntu, djúpstæðu sorg leiðtogans megi rekja til þess að 33 kínverskir ferðamenn létu lífið í slysinu. Kínverjar virðast vera einu opinberu stuðningsmenn norður-kóreskra stjórnvalda á þessum umbrotatímum í utanríkismálum hins einangraða ríkisins. Þá eru Kínverjar um 80% allra ferðamanna sem sækja Norður-Kóreu heim.

Því telja fréttaskýrendur að fréttaflutningurinn af slysinu og sorg leiðtogans sé tilraun Kim til að verja ímynd Norður-Kóreu í augum Kínverja. Fyrsta opinbera heimsókn Kim var jafnframt til Kína, sem hann sótti heim fyrr á þessu ári.


Tengdar fréttir

Kim Jong-un djúpt snortinn yfir suður-kóreskum söngatriðum

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, var í áhorfendasalnum þegar söngvarar frá Suður-Kóreu stigu á svið í Pyongyang. Þetta er í fyrsta skipti sem leiðtogi norðursins mætir á viðburð sem haldinn er af suður-kóreskum listamönnum.

Kim heitir afvopnun í Kínaheimsókn

Fyrsta heimsókn einræðisherra Norður-Kóreu var til Kína. Kim sagði ástandið á Kóreuskaga fara batnandi. Sagður koma sér fyrir undir verndarvæng Kínverja. Kínverjar segja fundinn marka kaflaskil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×