Glamour

Kim í gegnsæjum netakjól á Balmain

Ritstjórn skrifar
GLAMOUR/GETTY
Tískuvikan í París byrjaði ekki vel hjá Kim Kardashian þegar maður laumaði sér framhjá öryggisvörðum og kyssti afturenda hennar þegar hún var að ganga að bílnum sínum. 

Kim var engu að síður mætt aftur á tískuvikuna í dag á sýningu Balmain, en hún og Olivier Roustaing, listrænn stjórnandi tískuhússins eru góðir vinir. Hún vakti mikla athygli á sýningunni, eins og allt sem hún fer, í þunnum netakjól sem skildi ekki mikið eftir fyrir ímyndunaraflið. 

Kourtney Kardashian sat með systur sinni á fremsta bekk og var einnig í nokkuð gegnsæjum kjól. 






×