Glamour

Kim dauðleiðist lífið utan sviðsljóssins

Ritstjórn skrifar
Kim Kardashian er vön að vera miðpunktur athyglinnar.
Kim Kardashian er vön að vera miðpunktur athyglinnar. Mynd/Getty
Það hefur farið lítið fyrir Kim Kardashian seinasta mánuðinn eftir ránið í París. Hún hefur haldið sig frá samfélagsmiðlum og verið lítið á meðal fólks. Það var ekki fyrr en í þessari viku sem að tökur hófust aftur á Keeping up with the Kardashians. 

Samkvæmt heimildum fjölmiðla vestanhafs leiðis Kim gífurlega mikið. Hún er vön því að vera stöðugt að vinna og með líf sitt opið fyrir aðdáendur í gegnum samfélagsmiðla. Samkvæmt ummælum fjölskyldumeðlima hennar er þó enn langt í land þangað til að Kim nái að jafna sig alveg á því sem gerðist í París.

Það hlýtur því að vera tímaspursmál hvenær Kim snýr aftur á samfélagsmiðla og við bíðum spenntar þangað til.






×