Heilsa

Kíkt á æfingu með slökkviliðsmönnum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Í fjórða þætti af EA Fitness, sem sjá má hér fyrir neðan, fara Elma og Anton á æfingu með algjörum hetjum - nefnilega slökkviliðsmönnum. 

Þau kíkja líka á öfluga og hressandi fótaæfingu og Einarshornið er að sjálfsögðu á sínum stað. Hvernig skildi mælingin koma út?

Elma Grettisdóttir er með menntun frá World Class-skólanum og í Stott Pilates. Hún hefur unnið sem einkaþjálfari í mörg ár og er þjálfunin ekki bara vinna fyrir henni heldur einnig áhugamál. Hún býður uppá einkaþjálfun í World Class sem og fjarþjálfun.

Anton Rúnarsson hefur unnið sem einka- og fjarþjálfari í meira en tíu ár. „Að aðstoða fólk við að koma sér í form og læra að halda sér í formi er það sem ég geri, megrun er ekki í mínum orðaforða heldur lífsstíll. Að endurstilla hugarfarið til að lifa heilbrigðum lífsstíl,“ segir Anton. Hann er menntaður einkaþjálfari frá World Class-skólanum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×