Handbolti

Kiel upp að hlið Löwen

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel.
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel. vísir/getty
Kapphlaup Kiel og Rhein-Neckar Löwen um meistaratitilinn í Þýskalandi heldur áfram en liðin eru jöfn á toppnum.

Kiel lagði í kvöld lið Gummersbach, 31-26. Staðan í hálfleik var 14-11 fyrir Kiel.

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, var þarna að leggja sitt gamla félag en hann þjálfaði Gummersbach áður en hann fór til Kiel.

Domagoj Duvnjak fór á kostum í liði Kiel en hann skoraði níu mörk fyrir liðið og Niclas Ekberg átta.

Þýski landsliðsmaðurinn Julius Kuhn var markahæstur í liði Gummersbach með átta mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×