Handbolti

Kiel tryggði sér sæti í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron í leik með Kiel.
Aron í leik með Kiel. vísir/getty
Kiel fór örugglega áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar eftir öruggan sigur á Mol-Pick Szeged í síðari leik liðanna átta liða úrslitunum, 32-23. Aron Pálmarsson lék vel í liði Kiel.

Kiel sýndi það frá byrjun að þeir voru mikið sterkari aðilinn, en þeir töpuðu fyrri leiknum með tveggja marka mun.

Þeir sýndu mátt sinn og megin og voru meðal annars 18-10 yfir í hálfleik. Aron Pálmarsson lék félaga sína vel uppi og gaf fjöldan allan af stoðsendingum. Lokatölur 32-23 sigur Kiel.

Filip Jicha og Marko Vujin voru markahæstir hjá Kiel með átta mörk hvor, en Jonas Källman gerði fimm fyrir gestina.

Kiel er því komið í undanúrslitarhelgina sem fram fer í Köln í lok maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×