Handbolti

Kiel með auðveldan sigur á Wetzlar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alfreð kom Kiel í Finar Four í Köln á dögunum.
Alfreð kom Kiel í Finar Four í Köln á dögunum. vísir/afp
Kiel vann auðveldan sigur á Wetzlar, 30-21, í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik og var sigur þeirra aldrei í hættu.

Staðan í hálfleik var 16-7 fyrir lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Kiel og hefur liðið verið sjóðandi heitt undanfarnar vikur.

Domagoj Duvnjak gerði sex mörk fyrir Kiel í leiknum og Niclas Ekberg var með fimm.

Í liði Wetzlar var Jannik Kohlbacher atkvæðamestur með fjögur mörk. Kiel er í þriðja sæti deildarinnar.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×