Handbolti

Kiel marði sigur á Hannover-Burgdorf

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alfreð er alltaf líflegur á hliðarlínunni.
Alfreð er alltaf líflegur á hliðarlínunni. vísir/getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar hjá Kiel komust í hann krappann á heimavelli gegn Hannover-Burgdorf í þýsku deildinni í kvöld.

Mikil spenna var undir lokin en Domagoj Duvnjak tryggði Kiel eins marks sigur, 27-26, með marki 20 sekúndum fyrir leikslok.

Kiel komst með sigrinum í toppsæti þýsku deildarinnar en Hannover er í níunda sæti.

Marko Vujin var markahæstur allra á vellinum en hann skoraði sex mörk fyrir Kiel.

Rúnar Kárason skoraði þrjú mörk úr fimm skotum fyrir Hannover.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×