Handbolti

Kiel eitt á toppnum | Rúnar skoraði átta

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rúnar í landsleik.
Rúnar í landsleik. Vísir/Vilhelm
Kiel náði toppsætinu á ný með auðveldum sigri á TSG Lu-Friesenheim, 33-20. Staðan var 13-11 Kiel í vil í hálfleik.

Aron Pálmarsson skoraði eitt mark úr fjórum skotum fyrir Kiel, en Domagov Duvnjak var markahæstur hjá Kiel með tíu mörk.

Með sigrinum er Kiel eitt á toppnum, en Rhein-Neckar Löven jafnaði Kiel að stigum með sigri í gær.

Magdeburg vann sex marka sigur á TSV Hannover-Burgdorf í sömu deild, 34-28, eftir að hafa verið undir í hálfleik, 12-13.

Robert Weber lék á alls oddi í liði Magdeburg, en hann skoraði átta mörk. Bartosz Jurecki skoraði fimm mörk.

Rúnar Kárason var frábær í liði Hannover, en hann skoraði átta mörk. Fjögur markanna komu úr vítum.

Magdeburg er í þriðja sætinu, en Geir Sveinsson er að gera frábæra hluti með Magdeburg. Hannover-Burgdorf er í tólfta sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×