Handbolti

Kiel áfram á toppnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð stýrði Kiel til sigurs í kvöld.
Alfreð stýrði Kiel til sigurs í kvöld. vísir/getty
Kiel er áfram á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir öruggan sigur á Melsungen í kvöld. Lokatölur 23-30, Kiel í vil.

Strákarnir hans Alfreðs Gíslasonar eru með 26 stig á toppnum, tveimur stigum á undan Flensburg sem rúllaði yfir Leipzig í kvöld, 31-23. Flensburg hefur leikið einum leik færra en Kiel.

Niclas Ekberg skoraði níu mörk fyrir Kiel sem var allan tímann með yfirhöndina í leiknum í kvöld. Staðan í hálfleik var 10-18, Kiel í vil.

Ekberg var markahæstur í liði Kiel en Nikola Bylik og Lukas Nilsson komu næstir með fimm mörk hvor.

Kiel mætir Magdeburg í næsta deildarleik sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×