Fótbolti

Kiddi Jak dæmir hjá Celtic

Kristinn Jakobsson.
Kristinn Jakobsson. vísir/daníel
Flautan er ekki alveg farin á hilluna hjá Kristni Jakobssyni því hann er enn að dæma í Evrópukeppnum.

Kristinn verður í eldlínunni á fimmtudag er hann dæmir leik Celtic og rúmenska liðsins FC Astra í Evrópudeildinni.

Á línunum hjá Kristni verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Sigurður Óli Þórleifsson. Gunnar Sverrir Gunnarsson verður fjórði dómari.

Aukaaðstoðardómarar verða síðan þeir Þóroddur Hjaltalín og Vilhjálmur Alvar Þórarinsson.

Celtic er í efsta sæti D-riðils með fjögur stig eftir tvo leiki en Astra er enn í leit að fyrsta stiginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×