Viðskipti erlent

KFC, Taco Bell og McDonald's selja versta skyndibitann

Stefán Ó. Jónsson skrifar
VISIR/AFP
Þrjár af stærstu skyndibitakeðjum heims, McDonald‘s, Taco Bell og KFC, fá harða útreið í nýrri könnun sem neytendatímaritið Consumer Reports birti nú á dögunum.

Samkvæmt þeim 32.405 sem tóku þátt í könnuninni eru flaggskip staðana þriggja þau verstu í sínum flokkum; McDonald‘s býr til verstu hamborgarana, KFC býður upp á versta kjúklinginn og Taco Bell selur versta mexíkóska matinn.



Skyndibitaiðnaðurinn er heljarinnar fyrirtæki vestanhafs og talið er að Bandaríkjamenn eyði rúmlega 683 milljörðum dala í skyndibitamat á þessu ári. Það gerir tæplega 240 milljarða króna daglega.

Talið er að niðustöður könnunarinnar megi rekja til nýrrar kynslóðar neytenda sem gera ríkari gæða- og bragð kröfur en eru einnig meðvitaðri um framleiðsluferli vörunnar en áður. Stærri veitingastaðakeður eigi erfiðara með að bregðast hratt við breyttu landslagi á skyndibitamarkaðnum.



Niðurstöðurnar voru á þessa leið:

  • Hamborgarar McDonald‘s enduðu í neðsta sæti af 21 skyndibitastaðakeðju með einkunnina 5.8. The Habit Burger Grill í Kaliforníu fékk 8.1 og rataði í fyrsta sæti.

  • Af átta kjúklingastaðakeðjum reyndust kjúklingar KFC þeir verstu en þeir hlutu einkunnina 7.1 Efsta sætið prýddi hins vegar Chick-Fil-A með einkunn upp á 8.0.

  • Taco Bell fékk 6.3 fyrir mexíkóska matargerð sína og skilaði það þeim í neðsta sætið sem fyrr segir. Veitingastaðakeðjan Chipotle prísar sig sæla með fyrsta sætið og frammistöðu upp á 7.8.  





Fleiri fréttir

Sjá meira


×