Tónlist

Keyrðu hringinn með Sigur Rós og það í 360° - Myndbönd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnað að horfa á þetta.
Magnað að horfa á þetta. vísir
Fyrr í sumar stóð íslenska sveitin Sigur Rós að ákveðnum gjörningi þegar bíll Ríkissjónvarpsins keyrði hringveginn með tónlist Sigur Rósar ómandi undir.

Á sama tíma var hægt að fylgjast með í beinni útsendingu frá hringferðinni. Eftir að efnið hafði verið tekið upp var klippt saman sex mínútna myndband sem er í dag tónlistarmyndband við nýjasta lag þeirra Óveður.

Nú er aftur á móti hægt að horfa á allan hringveginn og það í heilan sólahring. Allt saman er um að ræða 360 gráðu myndbönd og var um að ræða það mikið magn af gögnum að Sigur Rós varð að senda mann í höfuðstöðvar YouTube til að koma þessu öllu til skila.

Hér að neðan má sjá sólahringshringferð með Sigur Rós.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×