Erlent

Keyrði bíl inn í höfuðstöðvar Íhaldsflokksins í Madríd

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögregla sendi sprengjuleitarvélmenni að bílnum.
Lögregla sendi sprengjuleitarvélmenni að bílnum. Vísir/AFP
Maður sem hafði misst fyrirtæki sitt og orðið gjaldþrota keyrði bíl inn í höfuðstöðvar Íhaldsflokksins í Madríd. Í bílnum voru tveir tankar en þeir sprungu ekki og engan sakaði.

Talsmaður lögreglunnar sagði AFP fréttaveitunni að maðurinn hefði misst allt. Hann var handtekinn.

Í tönkunum fannst efni sem enn á eftir að greina, en lögreglan vildi ekki staðfesta fregnir af því að í þeim væri áburður. Upprunalega sagði lögreglan að sprengja hefði verið í bílnum, en það var dregið til baka.

Lögreglan girti af og lokaði stóru svæði í miðborg Madríd, sem leiddi til umferðarteppu og að fjölmargir komu seint til vinnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×