Viðskipti innlent

Keyptu vörur fyrir 1,2 milljarða í desember

Stefán Árni Pálsson skrifar
Erlendir ferðamenn greiddu 1,2 milljarða króna með greiðslukortum í verslunum í desember.
Erlendir ferðamenn greiddu 1,2 milljarða króna með greiðslukortum í verslunum í desember.
Erlendir ferðamenn greiddu 1,2 milljarða króna með greiðslukortum í verslunum hér á landi í desember síðastliðin sem er 13% aukning frá árinu áður. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar.

Þá eyddu þeir 784 milljónum króna í skipulagðar skoðanaferðir og ýmsa sérsniðna ferðaþjónustu sem er aukning um 68% frá desember árið áður. Þá greiddu erlendir ferðamenn með kortum sínum veitingar á veitingahúsum fyrir 565 milljónum króna í desember sem er 47% aukning frá árinu áður.

Alls nam greiðslukortavelta erlendra ferðamanna 4,5 milljörðum krónu í desember sem er 32% aukning frá árinu áður. Þessi aukning er vegna aukins fjölda ferðamanna en ekki vegna þessa þess að hver ferðamaður eyði meira en árið áður. Hver erlendur ferðamaður greiddi að jafnaði 107 þúsúnd krónur með greiðslukorti sínu hér á landi í desember síðastliðnum en 120 þúsúnd krónur í desember 2012.

 

Athyglisvert er að greina einstaka útgjaldaliði erlendra ferðamanna í desember: Þannig virðast erlendir ferðamenn aka um á bílaleigubílum í mun meira mæli en áður í desember. Aukning í kortaveltu til bílaleiga var 52% á milli ára; 214 milljónir króna í desember síðastliðnum og 141 milljónir króna í desember árið áður. Erlend kortavelta í verslunum var mest í fataverslun, 224 milljónir króna, en mest aukning á milli ára var í dagvöruverslun, 21%, og nam 196 milljónir króna.

Árið 2013 greiddu erlendir ferðamenn 78,4 milljarða króna með greiðslukortum og jókst heildarkortaveltan um 24,4% frá árinu áður. Hver ferðamaður greiddi að jafnaði 97.400 kr. með greiðslukorti árið 2012 en á síðasta ári nam þessi upphæð 100.400. Aukning á hvern ferðamann nam því 3% á milli ára, sem er heldur minna en verðlagshækkanir, þannig að raunminnkun var í erlendri kortaveltu á hvern erlendan ferðamann sem hingað kom árið 2013.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×