Lífið

Key West Tropical þema í barnaherberginu

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar
Sonja Bent fatahönnuður með drenginn sinn, Mána. Æskuár Sonju á Flórída voru henni ofarlega í huga þegar hún innréttaði barnaherbergið.
Sonja Bent fatahönnuður með drenginn sinn, Mána. Æskuár Sonju á Flórída voru henni ofarlega í huga þegar hún innréttaði barnaherbergið.
Strendur Flórída rötuðu alla leið upp í Breiðholt þegar Sonja Bent fatahönnuður útbjó barnaherbergi 4 mánaða sonar síns Mána. Skeljar sem Sonja safnaði sjálf í æsku á ströndinni í Key West nýtti hún í óróra fyrir ofan vögguna sem er handhnýtt og hangir úr loftinu.

Er eitthvert þema í herberginu?

„Æska mín var mér mjög ofarlega í huga þegar ég fór að útfæra herbergið hans, en frá níu mánaða aldri var ég með með annan fótinn í Key West á Flórída. Bakgarðurinn á húsinu var ströndin. Þetta voru æðislegir tímar. Pabbi að veiða og kafa eftir humri. Mamma og systir mín á fullu að hnýta macrame-blómapotta, hengirúm og alls kyns fínerí og við krakkarnir að leika okkur á ströndinni. Úr varð „Key West Tropical“ þema.“

Vegglímmiðarnir koma frá Urban Walls og skapa ekta strandstemmingu í herberginu.
Hvað þurfti að gera?

„Herbergið er inn af okkar svefnherbergi og var lokað af sem fataherbergi. Við þurftum því að taka niður hurð og vegg og opna inn í rýmið, parketleggja og mála.“



Vaggan er handhnýtt af hjónum í Níkaragva. myndir/ernir
Vaggan hnýtt í Níkaragva

„Það hvarflaði að mér í smá stund að reyna að útbúa vöggu fyrir hann úr macrame-hnýtingum til að fullkomna þemað en fann síðan æðis­leg hjón í Níkaragva sem búa til fallegar vöggur og hengirúm, HangAhammock. Þetta er ótrúlega vönduð og falleg vagga og Máni elskar að vera í henni. Hentar svo vel að hún skuli hanga upp á að geta ruggað honum í svefn. Svo fann ég þessa æðislegu pálmatréslímmiða og fugla sem gefa silúettu af hitabeltislandslagi hjá Urban Walls í Bandaríkjunum sem systir mín ákvað að gefa Mána í herbergið.“

Fallegir hlutir og leikföng hanga á vegg fyrir ofan skiptiborðið.
Skeljasafnið varð að óróa

„Skeljaóróann bjó ég til úr skeljum sem ég tíndi sem barn í Key West. Ég hef safnað skeljum og steinum allt mitt líf, árátta sem kom sér afar vel í þetta skiptið.“

Loftljósið setti Sonja sjálf saman úr OYOY-óróa og viðarkúlum.
Skemmtilegt loftljós

„Ljósið í loftinu bjó ég til úr OYOY-óróa sem ég keypti hjá Hjarni og tók í sundur. Fékk síðan snúru og íhluti fyrir ljósið og fallega peru í Glóey. Keypti síðan viðarkúlur í Litum og föndri sem ég þræddi upp á snúruna á milli tuskudýranna.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×