Golf

Kevin Na og Ian Poulter bítast um efsta sætið í Texas

Ian Poulter á þriðja hring.
Ian Poulter á þriðja hring. Getty
Kevin Na leiðir enn á Crowne Plaza Invitational en þegar að 18 holur eru óleiknar á hann eitt högg á Ian Poulter sem kemur í öðru sæti.

Na er samtals á 11 höggum undir pari, Poulter á 10 höggum undir en Charley Hoffman er einn í þriðja sæti á níu höggum undir pari.

Næst besti kylfingur heims, Jordan Spieth, gæti þá einnig blandað sér í baráttuna um sigurinn ef hann spilar vel á lokahringnum en hann er á sex höggum undir pari eftir hringina þrjá á Colonial vellinum.

Á Wentworth vellinum á Englandi fer fram BMW PGA meistaramótið en það er hluti af Evrópumótaröðinni.

Þar leiða þeir Francesco Molinari og Byeong Hun-An á 14 höggum undir par en tilþrif dagsins átti Englendingurinn Tommy Fleetwood sem gerði sér lítið fyrir og nældi sér í albatross á fjórðu holu með frábæru innáhöggi.

Hann er í baráttu um sigurinn á 12 höggum undir pari sem og Spánverjinn vinsæli, Miguel Angel Jimenez sem er á 11 höggum undir.

Báðir lokahringirnir verða í beinni útsendingu á Golfstöðinni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×