Innlent

Kerra með níu ungmenni á miklum hraða á þjóðveginum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hér má sjá myndina sem vegfarandinn tók. Andlit ungmennana hafa verið skyggð.
Hér má sjá myndina sem vegfarandinn tók. Andlit ungmennana hafa verið skyggð.
Traktor sem dró á eftir sér kerru með níu ungmennum í Skaftafellssýslu vakti óhug vegfarandi sem átti leið um þjóðveg eitt. Hafði hann samband við Vísi enda varð honum ekki um sel:

„Mér var bara gífurlega ofboðið. Þetta var ekkert annað en vítavert gáleysi enda var öllum unglingunum stefnt í hættu,“ segir vegfarandinn sem vildi ekki láta nafn síns getið.

Enginn öryggisbúnaður var á kerrunni, kerran var ekki á númerum og að öllum líkindum ólögleg. Ekki bættir úr skák að „gríðarleg umferð“ var í báðar áttir og traktorinn á töluverðri ferð.

Þegar myndinni var smellt af hafði traktorinn hægt á sér til að keyra yfir einbreiða brú á veginum.

„Maður hefur þurft að horfa upp á banaslys í kringum mann og því verður manni um og ó þegar maður sér aðra eins hegðun,“ bætir vegfarandinn við og fannst honum því rétt að vekja athygli á þessu.

Í samtali við lögreglumann í umdæminu sagði hann að þetta sé ekki eitthvað sem eigi að tíðkast, hvað þá á þjóðvegum landsins þar sem umferðarhraðinn er mikill og farþegum kerrunnar því stefnt í töluverða hættu að ósekju. Allir á vagninum eru án öryggis- og hlífðarbúnar og því má ekki mikið út af bregða svo að alvarlegt tjón verði. Fjölmörg dæmi eru um slíkt á síðustu árum.

Hann hvetur alla þá sem kunna að verða vitni að svipaðri hegðun í framtíðinni að hafa samband við lögregluna tafarlaust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×