Skoðun

Kerfið mikilvægara en bændur?

Finnur Árnason skrifar
Nýlega skoraði ég á stjórnvöld að endurskoða hækkun á mjólkurvörum. Ástæðan, að opinber verðlagsnefnd ákvað að hækka verð á mjólkurvörum, m.a. á smjöri um 11,6%. Þrefalda hækkun vísitölu neysluverðs. Ég taldi rétt að stjórnvöld sýndu gott fordæmi og gættu aðhalds í verðlagsmálum. Vanhugsað væri að hækka verð svo mikið í kjölfar árangursríkra kjarasamninga.

Tímasetningin er röng og sendir röng skilaboð frá stjórnvöldum. Hún hefur víðtækari áhrif, m.a. á verðtryggð húsnæðislán heimilanna.

Athygli vakti að hækkunin rann að mjög litlu leyti til bænda. Neytendur greiða hærra verð, sem fer ekki til bænda. Ætla mætti að ég og formaður bænda ættum samleið í þessu máli. Svo var ekki. Ég kom við viðkvæman blett. Svo viðkvæman að formaður bændasamtakanna hætti að vera talsmaður bænda. Bændur voru skildir eftir útundan og kerfið varið á kostnað bænda og heimila.

Ráðherra svaraði ekki áskorun minni. Forystumenn bænda veittust hins vegar að mér og Högum. Formaðurinn fremstur í flokki og gerir álagningu verslunarinnar að umtalsefni. Hann gefur í skyn að verslanir hafi hækkað álagningu. Hagar eru skráðir í Kauphöllina og er skylt að birta álagningu sína opinberlega. Álagning félagsins hefur lækkað. Nýjustu tölur staðfesta að félagið hefur skilað öllum skattabreytingum og styrkingu krónunnar að fullu til sinna viðskiptavina. Formaðurinn vitnar í skýrslur sem hann segir m.a. „staðfesta að þegar kemur að álagningu og hækkunum til neytenda er verslunin mjög gróf“. Þessi svívirðilega aðdróttun á sér hvergi samastað og er ósönn. Engin skýrsla staðfestir að þetta eigi við um Haga.

Formaðurinn nefndi ekki að til ársins 2013 bauð MS árlega 75 tonn af smjöri á 20% afslætti til neytenda, 8% af heildarsölu smjörs. Í stað þess að segja ósatt og ásaka verslunina væri rétt að skoða heimahagana. Með því að hætta tilboðum hækkaði heildsöluálagning á smjöri á umræddu tímabili umtalsvert.

Landbúnaðarkerfið kostar neytendur 16-18 milljarða á ári. Bændur bera lítið úr býtum, neytendur greiða hátt verð og kostnaður ríkissjóðs er umtalsverður. Breytingar munu bæta hag bænda og hag neytenda. Sérhagsmunasamtök formannsins fá 500 milljónir á ári af fjárlögum í hagsmunabaráttu. Hærri upphæð en samanlagðir árlegir ríkisstyrkir til allra stjórnmálaflokka. Sindri vill ekki að ég tali fyrir neytendur. Ég mun tala máli viðskiptavina okkar. Ríkisstyrktur rógburður mun ekki breyta því og áskorun mín til stjórnvalda stendur.




Skoðun

Sjá meira


×