Viðskipti innlent

Kerecis hlýtur 100 milljóna fjárframlag

Sæunn Gísladóttir skrifar
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Kerecis, ásamt Baldri Tuma og Hilmari.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Kerecis, ásamt Baldri Tuma og Hilmari. Mynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
Kerecis og bandaríska varnarmálaráðuneytið hafa gengið frá samningi um gerð sérútgáfu af sáraroði til að meðhöndla brunasár á særðum hermönnum.

Í kjölfar aukinnar tíðni á brunasárum í hernaði setti Bandaríkjaþing nýverið lög um 46 milljóna dollara, 5,3 milljarða króna, sérframlag til læknisfræðilegrar þróunar á meðferðarúrræðum fyrir brunasár og hefur Kerecis hlotið fjárframlag úr fjárveitingunni sem nemur í upphafi um 100 milljónum króna.

Kerecis er íslenskt þróunar-, framleiðslu- og markaðsfyrirtæki sem starfar á lækningavörumarkaði.

Fram kemur í tilkynningu að ákjósanlegasta meðhöndlun á brunasárum sem ná inn í hold eða bein er meðhöndlun í upphafi með líkhúð og á seinni stigum með samgræðlingum (húð flutt af einum stað á annan á líkama þess slasaða). Hvorug þessara aðferða hentar til notkunar á herspítölum á átakasvæðum og felur verkefnið í sér að sérstök útgáfa af sáraroðinu verður þróuð og prófuð fyrir þessa notkun. Húð af spendýrum hentar illa þar sem meðhöndla þarf slíka húð sérstaklega vegna smithættu en slík smithætta er ekki til staðar milli fiska og manna

„Í hernaðarátökum undanfarinna ára hefur brunaáverkum fjölgað mjög hjá bandarískum hermönnum og það er sérstakt áhersluefni bandarískra stjórnvalda að þróa bætt meðferðarúrræði. Það er frábært að bandaríski herinn skuli velja okkur til samstarfs í þessu verkefni sem gagnast mun bæði hermönnum sem slasast á átakasvæðum en ekki síður almenningi sem slasast við sín daglegu störf,“ segir Hilmar Kjartansson, bráðalæknir hjá Kerecis.

„Við höfum undanfarin ár einbeitt okkur að meðhöndlun á sykursýkissárum og öðrum þrálátum sárum. Með þessu verkefni og öðrum verkefnum sem við höfum unnið með bandarískum yfirvöldum undanfarin ár færum við okkur yfir í bráðaáverka eins og brunasár eru,“ segir Baldur Tumi Baldursson, húðsjúkdómalæknir hjá Kerecis.

Þessi þriðji samningur Kerecis við bandarísk varnarmálayfirvöld er við rannsókna- og lækningavöruinnkaupadeild banda­ríska landhersins. Fyrir vinnur Kerecis að verkefnum með sárarannsóknasetri bandaríska landhersins og rannsóknamiðstöð bandaríska sjóhersins og er framgangur þeirra verkefna samkvæmt áætlun.

Kerecis á því í samstarfi við þrjár stofnanir bandarískra varnarmálayfirvalda og stefnir að því að auka það samstarf enn frekar á næstu misserum. Opnun skrifstofu Kerecis í Washington DC nýverið er hluti af þeim áætlunum. saeunn@frettabladid.is


Tengdar fréttir

Fyrirtækin hafa vaxið um 15-20 prósent

Sjávarklasinn er fimm ára í ár. Starfsemin hefur vakið mikla athygli, einkum í Bandaríkjunum. Stofnandinn vill að Sílíkondalur sjávarútvegarins verði á Íslandi. Hann sætti rannsókn sérstaks saksóknara þegar Klasinn var stofnaður og se

Tækniþróunarsjóður úthlutar sex hundruð milljónum í desember

Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur valið þá aðila sem eiga kost á úthlutun úr sjóðnum núna í desember. Úthlutað er úr honum tvisvar sinnum á ári og í þetta skiptið er búist við því að 600 milljónir verði veittar í styrki. Verkefnisstjórum sem hafa sótt um úthlutun er boðið að ganga til viðræðna um úthlutun áður en fjármagnið er veitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×