Enski boltinn

Keown: Sigurðsson er frábær leikmaður

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Gylfi skorar sigurmarkið gegn Liverpool.
Gylfi skorar sigurmarkið gegn Liverpool. vísir/getty
Arsenal-goðsögnin Martin Keown hrósaði Gylfa Þór Sigurðsson í Match of the Day þættinum á BBC og segir Swansea eiga möguleika á að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Keown segir trú leikmanna Swansea á því að liðið geti náð árangri lykilinn að því að liðið haldi sér uppi.

„Ef þú getur unnið á Anfield þá getur þú nánast unnið hvar sem er,“ sagði Keown.

„Hann [Paul Clement knattspyrnustjóri Swansea] er með leikmenn sem geta ráðið úrslitum. Sigurðsson er frábær leikmaður ... hann er með réttu tólin til að snúa sig úr vandræðum,“ sagði miðvörðurinn gamli en nánar um það í spilaranum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×