Glamour

Kenzo hannar línu fyrir H&M

Ritstjórn skrifar
Carol Lim og Humberto Leo frá Kenzo með Ann Sofie Johannsson frá H&M.
Carol Lim og Humberto Leo frá Kenzo með Ann Sofie Johannsson frá H&M. Glamour/Getty
Í morgun svipti sænski verslanarisinn Hennes & Mauritz hulunni af næsta samstarfsaðila fyrirtækisins en það er enginn annar en tískuhúsið Kenzo með þeim Carol Lim og Humberto Leo í farabroddi. 

Línan er væntanleg í verslanir H&M út um allan heim þann 3 nóvember næstkomandi en verður hrint af stað með tískusýningu um miðjan október. 

Franska tískuhúsið Kenzo hefur verið á mikilli uppsveiflu undanfarin ár eftir smá lægð og er þekkt sem litríkt, ferskt og líflegt fatamerki sem fer ótroðnar slóðir í hönnun sinni. Þá hafa þau helst verið vinsæl fyrir einfaldar peysur og boli með lógóinu sínu framan á. Litadýrð og munstur einkenna merkið og því um ansi ólíkt samstarf frá Balmain í fyrra en sú lína var gífurlega vinsæl og seldist upp um leið. 

Það verður spennandi að fylgjast með þessu samstarfi þróast og er enginn vafi að það verða einhverjar raðirnar fyrir utan verslanir H&M út um allan heim þann 3 nóvember. 


Tengdar fréttir

Á uppleið: Í draumastarfinu hjá H&M

Hún ákveður hvað verður í tísku eftir ár, hvernig sniðin verða og hvaða litir verða mest áberandi. Hún hefur unnið með stórstjörnum eins og Donatellu Versace, Karl Lagerfeld, Sara Jessica Parker og Beckham og ætlar sér á toppinn.

H&M í túnfætinum

Enn berast af því tíðindi í íslenskum fjölmiðlum að sænski tískurisinn H&M hyggist opna verslanir hér á landi.






×