Lífið

Kennslumyndband í rómantískri kvöldförðun

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Förðunarfræðingurinn Tara Brekkan Pétursdóttir birtir nýtt kennslumyndband á YouTube-síðu sinni þar sem hún fer yfir rómantíska kvöldförðun, skref fyrir skref.

Tara sýnir einnig hvaða vörur hún notar til að ná réttum árangri og leiðbeiningar á ensku fylgja líka með.

Tara útskrifaðist úr tísku- og ljósmyndaförðun frá Snyrtiakademíunni árið 2010 og hefur tekið að sér að farða fyrir ýmsa viðburði, jafnt stóra sem smáa.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×