Innlent

Kennarasambandið stefnir ríkinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Stjórn Kennarasambands Íslands hefur samþykkt að stefna íslenska ríkinu vegna breytinga á lögum um lífeyrissjóði opinberra starfsmanna.

Frumvarpið var samþykkt á þingi í gær en í tilkynningu frá Kennarasambandinu segir að það sé ekki „í samræmi við það samkomulag sem gert var við forystu opinberu stéttarfélaganna og því hafði það samkomulag ekkert gildi þegar Alþingi fjallaði um málið. Þeir þingmenn sem fullyrtu að málið hefði verið unnið í samkomulagi við forystu opinberra starfsmanna töluðu því gegn betri vitund.“

Í tilkynningunni segir jafnframt að Kennarasambandið hafi „fallist á mikilvægi þess að gera lífeyrissjóði opinberra opinberra starfsmanna sjálfbæra og að kerfinu þurfi að breyta til að svo megi verða. KÍ hefur alla tíð bent á að besta leiðin til slíkra breytinga er að loka A deildinni og stofna nýja deild um áramót á breyttum forsendum. Félagsmenn KÍ hafa margir hverjir greitt í opinberu lífeyrissjóðina allan sinn starfsaldur og þegið lægri laun fyrir vikið gegn tryggari lífeyrisréttindum.“

Að mati Kennarasambandsins standa félagsmenn þess sem og aðrir opinberir starfsmenn nú frammi fyrir forsendubresti sem gengur gegn stjórnarskrá landsins að mati stjórnar sambandsins. Hyggst félagið því ganga alla leið til að verja hagsmuni félagsmanna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×