Glamour

Kendall kynþokkafull í nýrri herferð Calvin Klein

Ritstjórn skrifar
Glamour/Skjáskot
Fyrirsætan Kendall Jenner er ein af aðalfyrirsætum í nýrri herferð Calvin Klein og er mál manna að um einkar kynþokkafulla auglýsingaherferð sé að ræða. 

Ekki nóg með það heldur ber herferðin heitið Erotica. Calvin Klein hafa ávallt verið þekktir fyrir að feta nýjar slóðir í herferðum sínum en í þetta sinn er fókusinn á nærfötunum. 

Ásamt Kendall má sjá Abbey Lee Kershaw og Klara Kristin - en auglýsingarnar eiga greinilega að ná til unga fólksins. 

Leyfum myndunum að tala sínu máli. 

Glamour/Skjáskot
Glamour/Skjáskot





×