Lífið

Kendall Jenner allsber á hestbaki - eða hvað?

Samúel Karl Ólason skrifar
Kendall Jenner með systur sinni Kylie Jenner.
Kendall Jenner með systur sinni Kylie Jenner. Vísir/Getty

Fyrirsætan Kendall Jenner birti í gærkvöldi mynd sem virtist vera af henni allsberri liggjandi á hesti á Instagram. Myndin hefur farið eins og eldur um internetið og kannski er komið að Kendall að brjóta internetið eins og systir sín Kim Kardashian.

Myndinni fylgir enginn texti. Hún hefur fengið rúmlega 1,1 milljón like og tæplega hundrað þúsund manns hafa skrifað ummæli við hana.

Ekki eru þó allir sammála um að myndin sé af Jenner, en franska fyrirsætan Elisa Meliani birti í dag skjáskot af myndinni sem hún segir að sé af sér og hestinum sínum.

Færslurnar báðar má sjá hér að neðan.

Kendall Jenner
Elisa Melian

Waouuu ! Me and my horse on Kendall IG ❤️ @kendalljenner #blessed

A photo posted by Elisa Meliani (@elisajazz) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×