Glamour

Kendall Jenner á vinsælustu mynd Instagram

Ritstjórn skrifar
Kendall Jenner
Kendall Jenner Glamour/Getty
Fyrirsætan Kendall Jenner á vinsælustu mynd samfélagmiðilsins Instagram, eða þá mynd sem hefur fengið flest hjörtu eða læk. Myndin, sem má sjá hér að neðan, fær 2,6 milljón læk og er það met. 

Jenner hefur því skotið systur sinni, Kim Kardashian, ref fyrir rass en brúðarmyndin af henni og Kanye West bar áður titilinn vinsælasta myndin með 2,4 milljón læk. 

Það eru fáir sem komast með tærnar þar sem Kardashian og Jenner fjölskyldan er með hælana í að nýta sér samfélagsmiðlana til hins ýtrasta og er þetta enn ein fjöðurinn í þann hatt. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.

 


A photo posted by Kendall Jenner (@kendalljenner) on May 25, 2015 at 3:51pm PDT






×