Innlent

Kemur Davíð ekki á óvart að Ólafur sé hættur við framboð

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Davíð Oddsson þegar hann tilkynnti um framboð sitt í gær.
Davíð Oddsson þegar hann tilkynnti um framboð sitt í gær. vísir/ernir
Davíð Oddsson, forsetaframbjóðandi, segir að það komi sér ekki á óvart Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sé hættur við að bjóða sig fram til forseta.

„Nei, ekki endilega miðað við hvernig hann tjáði sig í gær þá fannst mér þetta frekar líklegra heldur en hitt,“ segir Davíð í samtali við Vísi.

Davíð neitar því að þeir Ólafur Ragnar hafi eitthvað rætt saman í aðdraganda þess að Davíð tilkynnti um forsetaframboð sitt í gær.

„Nei, við höfum ekki talað saman, ég man ekki hvenær það var, hvort það var í september eða október á síðasta ári. Það var bara almennt spjall,“ segir Davíð.

Hann segist ekki vita hvaða áhrif þetta mun hafa á kosningabaráttuna; hann sé sjálfur nýkominn í framboð.

Nokkrum mínútum áður en Ólafur Ragnar tilkynnti um að hann væri hættur við hafði blaðamaður haft samband við Davíð til að fá viðbrögð hans við nýrri könnun MMR um fylgi forsetaframbjóðenda. Davíð vildi ekki tjá sig um könnunina sem gerð var dagana 6.-9. maí. 27 prósent aðspurðra fengu því nafn Davíðs sem valkost í könnuninni og mælist hann með 3,1 prósent fylgi.

Guðni Th. Jóhannesson ber höfuð og herðar yfir aðra frambjóðendur samkvæmt könnuninni en hann mælist með tæplega 60 prósent fylgi. Ólafur Ragnar, sem nú er hættur við að fara fram, mælist með um 25 prósent fylgi og Andri Snær með 8,5 prósent. Halla Tómadóttir mælist svo með 1,7 prósent fylgi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×