Lífið

Kelsey Grammer eignast sjötta barnið

Kelsey Grammer
Kelsey Grammer Vísir/Getty
Leikarinn Kelsey Grammer, best þekktur fyrir hlutverk sitt sem Frasier í samnefndum sjónvarpsþáttum, og núverandi eiginkona hans Kayte eignuðust sitt annað barn á þriðjudaginn.

Drengurinn fæddist á þriðjudag og hefur hlotið nafnið Kelsey Gabriel Elias Grammer.

„Við erum þakklát og spennt að fá þessa nýju viðbót við fjölskyldu okkar í heiminn - hann er dásamlegur!“ sagði parið í tilkynningu. 

Grammer-hjónin eiga þegar tveggja ára stúlku sem heitir Faith Evangeline Elisa Grammer, en sonurinn er sjötta barn Kelsey Grammer.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×