Tónlist

Kelis drekkur ekki mjólkurhristinga

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Kelis sló í gegn árið 2003 með lagið Milkshake en söngkonan sagði frá því í samtali við Mirror í vikunni að hún væri ekki hrifin af mjólkurhristingum.

„Það er fyndið en ég drekk reyndar ekki mjólkurhristinga,“ segir Kelis en lagið Milkshake fór á topp vinsældarlista um heim allan í den.

Þó Kelis drekki ekki mjólkurhristinga þykir henni samt sem áður afar vænt um lagið.

„Ég elska lagið Milkshake. Það er sniðugt. Ég veit hvað það þýddi, ég veit hvað það gerði fyrir tónlist og kvenkyns listamenn á þessum tíma. Ég segi ekki að ég hafi gert það ein en lagið átti stóran hlut í að tónlist fór í þá átt sem hún gerði,“ sagði hún í samtali við Spin í apríl á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×