Körfubolti

Keflavíkurstelpurnar brunuðu í Höllina á undan öllum öðrum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emelía Ósk Gunnarsdóttir skoraði mest fyrir Keflavík þegar liðið komst í undanúrslit Maltbikarsins í dag.
Emelía Ósk Gunnarsdóttir skoraði mest fyrir Keflavík þegar liðið komst í undanúrslit Maltbikarsins í dag. Vísir/Daníel Þór
Kvennalið Keflavíkur varð í dag fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum Maltbikarsins en að þessu sinni munu undanúrslitin fara fram í Laugardalshöllinni og í sömu viku og úrslitleikurinn.

Keflavíkurliðið átti ekki í miklum vandræðum með botnlið Grindavíkur í Röstinni í Grindavík í fyrsta leika átta liða úrslita Maltbikars kvenna en á endanum munaði 32 stigum á liðunum.

Keflavík var sautján stigum yfir í hálfleik, 43-26 og vann leikinn síðan 92-60.  Keflavíkurkonur unnu alla fjóra leikhlutana eða 14-10, 29-16, 23-15 og 26-19.

Emelía Ósk Gunnarsdóttir var stigahæst í Keflavíkurliðinu með 22 stig á 23 mínútum, Birna Valgerður Benónýsdóttir var með 16 stig á 16 mínútum og þær Thelma Dís Ágústsdóttir og Ariana Moorer skoruðu báðar 11 stig og tóku 9 fráköst hvor.

Grindavíkurliðið var án bandarísk leikmanns og mátti alls ekki í því en liðið hefur nú tapað þremur fyrstu leikjum ársins 2017 með samtals 68 stigum eða 22,7 stigum að meðaltali í leik.

Petrúnella Skúladóttir var í sérflokki hjá Grindavík með 21 stig en Ingunn Embla Kristínardóttir skoraði 11 stig.

Sverrir Þór Sverrisson, gat leyft sér að hvíla lykilmenn sína í seinni hálfleiknum en það er til nóg af efnilegum stelpum í Keflavík og þær sýndi það og sönnuðu í seinni hálfleiknum.

Átta liða úrslit Maltbikars kvenna fara fram á næstu tveimur dögum en leikirnir Breiðablik-Haukar og Snæfell-Stjarnan fara fram á morgun og Skallagrímur tekur síðan á móti KR í Borgarnesi á mánudagskvöldið.



Grindavík-Keflavík 60-92 (10-14, 16-29, 15-23, 19-26)

Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 21/8 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 11/7 fráköst, Angela Björg Steingrímsdóttir 6, Íris Sverrisdóttir 6, María Ben Erlingsdóttir 6/5 fráköst, Lovísa Falsdóttir 4, Arna Sif Elíasdóttir 3, Hrund Skúladóttir 3.

Keflavík: Emelía Ósk Gunnarsdóttir 22/4 fráköst, Birna Valgerður Benónýsdóttir 16/3 varin skot, Ariana Moorer 11/9 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 11/9 fráköst, Kamilla Sól Viktorsdóttir 8, Irena Sól Jónsdóttir 6, Katla Rún Garðarsdóttir 5, Þóranna Kika Hodge-Carr 5, Elsa Albertsdóttir 4/6 stoðsendingar, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 4/4 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×