Viðskipti innlent

Keflavíkurflugvöllur geti tekið á móti allt að sexfalt fleiri farþegum

ingvar haraldsson skrifar
Svona mun Keflavíkurflugvöllur líta út árið 2040 gangi áætlanir um uppbyggingu flugvallarins eftir.
Svona mun Keflavíkurflugvöllur líta út árið 2040 gangi áætlanir um uppbyggingu flugvallarins eftir. mynd/isavia
Gangi áform um stækkun Keflavíkurflugvallar eftir mun hann geta tekið á móti 14 milljónum farþega miðað við núverandi álagsdreifingu og allt að 25 milljónir miðað við jafnari dreifingu.

Þetta gæti því farið svo að Keflavíkurflugvöllur geti tekið á móti allt að sexfalt fleiri farþegum en á síðasta ári þegar 3,87 milljónir fóru um Keflavíkurflugvöll.

Þróunaráætlun um uppbyggingu Keflavíkurflugvallar fram til ársins 2040 var kynnt í dag á ný eftir samráð við hagsmunaaðila.

Sjá einnig: Leifsstöð mun tvöfaldast

„Samkvæmt áætlunum gætu farþegarnir verið 14 milljónir árið 2040, en verði það fyrr mun Keflavíkurflugvöllur engu að síður vera í stakk búinn til að taka á móti umræddum fjölda“ segir í umfjöllun um áætlunina á vefsvæði Isavia.

Áætlað er að fyrstu framkvæmdir hefjist í lok árs 2016, en verkið verður unnið í áföngum.

Spá Isavia um fjölgun farþega á Keflavíkurflugvelli fram til 2014.mynd/isavia
Eykur möguleika á gjaldeyristekjum vegna ferðamanna

Bent er á að þróunaráætlunin muni styðja við uppbyggingu ferðaþjónustunnar. Í nýútkomnum Vegvísi í ferðaþjónustu sé gert ráð fyrir að gjaldeyristekjur af greininni í heild muni aukast verulega og fari úr 350 milljörðum árið 2015 í meira en 620 milljarða 2020 og líklega yfir 1.000 milljarða árið 2030.

„Til þess að þessar áætlanir geti orðið að veruleika og ferðaþjónustan nái að skapa þessar gjaldeyristekjur þarf að vera aðstaða til að koma þeim til landsins,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.

„Sú staða má ekki skapast að Keflavíkurflugvöllur verði flöskuháls í þeirri uppbyggingu sem mun skila svo miklu til þjóðarbúsins. Því það er þjóðarbúið allt sem liggur undir og stækkun Keflavíkurflugvallar er því mál okkar allra, enda koma um 97% erlendra ferðamanna sem sækja landið heim í gegnum Keflavíkurflugvöll.“

Ekki gert ráð fyrir fjármögnun ríkisins

Stækkunin verður framkvæmd í nokkrum áföngum og ræðst stærð þeirra af því hversu mikil og hröð farþegaaukningin verður. Ljóst þykir að fyrsti áfanginn verði stór vegna mikillar uppsafnaðar þarfar til afkastaaukningar.

Ekki er gert ráð fyrir að íslenska ríkið sem eigandi Isavia þurfi að leggja fjármuni til framkvæmdanna. Isavia metur möguleika til fjármögnunar góða auk þess að til staðar séu tækifæri fyrir aðkomu annarra að Isavia.


Tengdar fréttir

Sjáðu breytingarnar á Keflavíkurflugvelli

Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur tekið stakkaskiptum að undanförnu en ráðist var í umfangsmiklar breytingar á flugvallarbyggingunni til að mæta mikilli fjölgun ferðamanna á liðnum árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×