Körfubolti

Keflavík vann toppslaginn og minnkaði forskotið niður í tvö stig

Anton Ingi Leifsson skrifar
Keflavík fagnar bikarnum um helgina og fagnaði einnig í kvöld.
Keflavík fagnar bikarnum um helgina og fagnaði einnig í kvöld. vísir/hanna
Keflavík minnkaði forskot Vals á toppi Dominos-deildar kvenna niður í tvö stig þegar Keflavík vann viðureign liðanna í TM-höllinni í Keflavík í kvöld, 82-71.

Brittany Dinkins lék á alls oddi í liði nýkrýndra bikarmeistara Keflavíkur, en hún skoraði alls 38 stig. Keflavík er með 22 stig, jafn mörg og Haukar sem eru í öðru sætinu, en Haukar eru með betri innbyrðisviðureignir.

Aalyah Whiteside skoraði 35 stig fyrir Val, en þetta var fjórði tapleikur Vals á tímabilinu. Deildin er afar jöfn og spennandi, en það stefnir í rosalegan endasprett.

Haukar lentu í engum vandræðum með Njarðvík að Ásvöllum í kvöld. Haukarnir byrjuðu af krafti og leiddu 45-27 í hálfleik. Eftirleikurinn varð auðveldur.

Að endingu varð munurinn 32 stig, en Whitney Michelle Frazier var stigahæst með 27 stig. Dýrfinna Arnardóttir gerði 19 stig, en Haukar eru í öðru sæti deildarinnar með 24 stig.

Shalonda Winton gerði átján stig fyrir gestina úr Reykjanesbæ sem sitja sem fastast á botni deildarinnar án stiga. Bikarliðið mikla ekki að ná sér á strik í deildinni.

Snæfell vann níu stiga sigur á grönnum sínum í Skallagrím, 82-71, en Snæfell var fjórum stigum yfir í hálfleik, 37-33.

Kristen McCarthy var frábær í liði Snæfells. Hún skoraði 37 stig og tók átta fráköst. Snæfell er með jafn mörg stig og Skallagrímur í sjötta til sjöunda sæti deildarinnar.

Carmen Tyson-Thomas skoraði 39 stig fyrir Skallagrím, en athygli vakti að Skallagrímur var -15 með hana inni á vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×