Körfubolti

Keflavík og Stjarnan með góða sigra

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Tveir leikir voru í Dominos-deild kvenna í körfubolta í dag. Keflavík vann Grindavík 89-65 á útivelli og Stjarnan lagði Skallagrím 86-75 á heimavelli.

Skallagrímur lagði Snæfell í fyrstu umferðinni en réðu ekki við sterkt lið Stjörnunnar sem hefur unnið báða leiki sína í deildinni.

Stjarnan var 37-33 yfir í hálfleik en það var í fjórða leikhluta sem Stjarnan gerði út um leikinn.

Keflavík byrjaði mun betur gegn Grindavík en heimaliðið náði að minnka muninn fyrir hálfleik og var staðan þá 41-37 fyrir Keflavík.

Gestirnir gerðu út um leikinn í seinni hálfleik og unnu sannfærandi sigur.

Stigaskor og gang leikjanna má finna hér að neðan.



Grindavík-Keflavík 65-89 (15-26, 22-15, 13-25, 15-23)

Grindavík: Ashley Grimes 19/9 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 14/6 fráköst, Ólöf Rún ladóttir 7, María Ben Erlingsdóttir 7/4 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 6/8 fráköst, Íris Sverrisdóttir 5/4 fráköst, Jeanne Lois Figeroa Sicat 3, Angela Björg Steingrímsdóttir 2, Sigrún Elfa Ágústsdóttir 2/6 fráköst.

Keflavík: Emelía Ósk Gunnarsdóttir 23/8 fráköst, Dominique Hudson 22/5 fráköst, Birna Valgerður Benónýsdóttir 14/7 fráköst, Þóranna Kika Hodge-Carr 9, Erna Hákonardóttir 8, Katla Rún Garðarsdóttir 4/6 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 3/9 fráköst, Svanhvít Ósk Snorradóttir 3, Irena Sól Jónsdóttir 2, Elsa Albertsdóttir 1,Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 0/6 fráköst/3 varin skot

Stjarnan-Skallagrímur 86-75 (19-16, 18-17, 21-20, 28-22)

Stjarnan: Danielle Victoria Rodriguez 23/7 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 19/9 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 14/8 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 8, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 7/6 fráköst/9 stoðsendingar, María Lind Sigurðardóttir 6/6 fráköst, Jenný Harðardóttir 6, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 3/5 stoðsendingar.

Skallagrímur: Tavelyn Tillman 28/5 stolnir, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 26/10 fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 8/8 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 5/8 fráköst/3 varin skot, Kristrún Sigurjónsdóttir 4, Sólrún Sæmundsdóttir 2, Auður Íris Ólafsdóttir 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×