Körfubolti

Keflavík og Njarðvík drógust saman í Malt-bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snæfellskonur fagna sigri í bikarúrslitaleiknum í fyrra. Þær byrja titilvörnina á móti Val.
Snæfellskonur fagna sigri í bikarúrslitaleiknum í fyrra. Þær byrja titilvörnina á móti Val. Vísir/Hanna
KKÍ kynnti til leiks nýjan samstarfsaðila í dag en bikarkeppni Körfuknattleikssambandsins heitir nú Maltbikarinn.

KKÍ greindi frá samningi sínum við Ölgerðina við viðhöfn í dag og þá var einnig dregið í 32 liða úrslit karla og 16 liða úrslit kvenna.

Tveir Domino´s deildarleikir verða í 32 liða úrslitum Maltbikars karla. Nágrannarnir Keflavík og Njarðvík mætast í Keflavík og Grindvíkingar taka á móti Stjörnunni.

Það verða líka tveir Domino´s deildarleikir verða í 16 liða úrslitum Maltbikars kvenna. Ísland- og bikarmeistarar Snæfells taka á móti Val og Grindvíkurkonur fá Njarðvík í heimsókn.

Valur og Snæfell drógust saman bæði í karla og kvennaflokki en fengu hvort félag einn heimaleik.

Þór Þorlákshöfn situr hjá í 32 liða úrslitum og var því fyrsta liðið sem kemst áfram í 16 liða úrslitin í ár.

Haukar, Skallagrímur, KR og Keflavík sitja öll hjá í 16 liða úrslitum Maltbikars kvenna og eru því öll komin áfram í átta liða úrslitin.



32 liða úrslit Maltbikars karla

Keflavík - Njarðvík

Grindavík - Stjarnan

Álftanes - Haukar (b)

Grundarfjörður-FSu

Gnúpverjar-KR

Vestri-Haukar

Leiknir R.-Sindri

Hrunamenn/Laugdælir - Þór Akureyri

Reynir S. - ÍR

Hamar - Höttur

Njarðvík (b) - ÍB

ÍA - Fjölnir

Valur - Snæfell

Skallagrímur - Breiðablik

KR (b) - Tindastóll

Þór Þorlákshöfn situr hjá og er komið áfram í 16 liða úrslit.



16 liða úrslit Maltbikars kvenna

Snæfell - Valur

Breiðablik - Fjölnir

Stjarnan - Þór Ak.

Grindavík - Njarðvík

Fjögur lið sitja hjá og komast beint í átta liða úrslitin en það eru Haukar, Skallagrímur, KR og Keflavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×